Product Description
Flokkunarkassinn er sérhannaður til að geyma hið fjölbreytta myndefni úr öllum þremur framburðaröskjunum, á einum stað. Setjið allar litlu myndirnar í botninn og greinið að með millispjöldunum sem eru merktar með táknmyndunum úr efninu. Í lokið komast allar stóru táknmyndirnar sem gefa fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Góð lausn til að geyma myndirnar allar á einum stað. Tómu framburðaröskjurnar má svo nota til að geyma verkefni sem hægt er að búa til með myndunum eða límmiðunum. Þær eru eigulegar og vandaðar með skemmtilegum myndum.



Möppur – Lærum og leikum með hljóðin
Hljóðalestin – verkefnabækur 5 stk í pakka
Segulpeningar 100 stk marglita